24. desember 2009 |
Jólamessunni í Gufudal aflýst
Nú síðdegis á aðfangadag stefnir í illviðri og ofankomu um norðvestanvert landið. Í ljósi þess hvernig lítur út með færð á morgun, jóladag, hefur messunni sem þá átti að vera í Gufudal verið aflýst. Að sögn Vegagerðarinnar er ekki gert ráð fyrir mokstri á Vestfjarðavegi vestan Bjarkalundar á morgun eins og nú horfir.