Tenglar

19. desember 2009 |

Jólaspjall Þjóðfræðistofu í Bragganum á Hólmavík

Þjóðfræðistofa á Ströndum efnir í dag, laugardag kl. 13, til þjóðfræðiþings, útgáfuhófs og menningardagskrár undir heitinu Jólaspjall Þjóðfræðistofu. Auk þess að miðla af rannsóknum verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar útgáfur. Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum. Samkoman verður í Bragganum á Hólmavík en Café Riis býður upp á létt jólahlaðborð á vægu verði.

 

Á dagskránni eru eftirtalin atriði:

  • Kristinn Schram þjóðfræðingur, forstöðumaður Þjóðfræðistofu, segir frá starfseminni á árinu.
  • Jón Þór Pétursson þjóðfræðingur segir frá meistaraverkefni sínu og rannsóknarverkefni Þjóðfræðistofu um íslenska matarhefð.
  • Katla Kjartansdóttir, verkefnastjóri á Þjóðfræðistofu, segir frá samtímasöfnun á leikjum íslenskra barna.
  • Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Strandagaldurs, kynnir samstarfsverkefni um jólaendurminningar Strandamanna.
  • Heimildamyndin Leitin að Gísla Suurinpojka.
  • Jón Jónsson, menningarfulltrúi og þjóðfræðingur, flytur jólahugvekju.
  • Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur segir frá nýútkominni bók sinni Eve Online sem gefin er út af Þjóðfræðistofu.
  • Söngflokkurinn Fúmm fúmm fúmm flytur jólatónlist.
  • Höfundar lesa upp úr nýjum bókum:
  • Vilborg Davíðsdóttir - Auður.
    Eiríkur Örn Norðdahl - Gæska.

Katla Kjartansdóttir, verkefnastjóri hjá Þjóðfræðistofu, sagði nýlega frá Jólaspjallinu í viðtali á RÚV, auk þess sem rætt var um söfnun á jólaminningum Strandamanna á ölllum aldri. Viðtalið má heyra hér.

 

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem sinnir rannsóknum og miðlun á þjóðfræði og tengdum greinum jafnt innanlands sem utan. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði fræða, menningar og lista. Fræðasetrið stendur fyrir viðburðum bæði á höfuðstöðvum sínum á Ströndum og annars staðar á landinu. Þjóðfræðistofa á samstarf jafnt við einstaklinga og stofnanir, hérlendis sem erlendis. Jafnframt veitir Þjóðfræðistofa upplýsingar og svarar fyrirspurnum frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum.

 

Vefsíða Þjóðfræðistofu er á slóðinni www.icef.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30