12. desember 2015 |
Jólatré, jólalög og epli
Ljósin á jólatrénu framan við Barmahlíð á Reykhólum verða tendruð á mánudagsmorgun kl. 11. Börnin og unglingarnir í leikskólanum og grunnskólanum koma, Hólabúð ætlar að gefa þeim epli, og aldrei að vita nema sungin verði nokkur jólalög.
Skrifstofa hreppsins og Hólabúð verða lokaðar meðan hátíðin fer fram.