Tenglar

7. nóvember 2011 |

Jón Bjarnason á opnum fundi á Hólmavík

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Opinn fundur um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál verður í Félagsheimilinu á Hólmavík á fimmtudag, 10. nóvember, og hefst kl. 17. Þar flytur Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra framsögu um málaflokka sína, stöðu þeirra í dag og fyrirhugaðar breytingar. Á fundinum verða einnig stuttar framsögur þar sem farið verður yfir stöðuna í þessum stóru málaflokkum á Ströndum og nýsköpun í þessum atvinnugreinum.

 

Dagskráin verður sem hér segir:

  • Sjávarútvegs-og landbúnaðarmál: Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Ávarp: Jón Jónsson, varaoddviti í Strandabyggð
  • Landbúnaðarmál: Matthías Lýðsson, bóndi í Húsavík
  • Sjávarútvegsmál: Óskar Torfason, framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Drangs ehf. á Drangsnesi
  • Sjávarútvegsmál: Már Ólafsson, sem á sæti í stjórn Landssambands smábátaeigenda og stjórn Stranda, félags smábátaeigenda í Strandasýslu
  • Pallborðsumræður

Fundarstjóri er Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri í Strandabyggð.

 

Fólk í Reykhólahreppi rétt eins og aðrir áhugasamir er hvatt til að sækja fundinn.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31