13. september 2010 |
Jóna Valgerður í Landsdómi
Í Landsdómi sem er mjög til umræðu um þessar mundir á sæti einn íbúi í Reykhólahreppi, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu II, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi sveitarstjóri Reykhólahrepps. Landsdómi er ætlað að fara með og dæma mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra. Í Landsdómi eiga sæti 15 dómendur. Hann var stofnaður fyrir 105 árum og hefur aldrei fram að þessu verið kvaddur saman.
Sjá nánar:
Alþingi - Jóna Valgerður Kristjánsdóttir