24. júní 2008 |
Jónsmessuganga á Vaðalfjöll
Gönguhópurinn í Reykhólahreppi ætlar að ganga á Vaðalfjöll í kvöld, þriðjudagskvöld. Lagt verður upp klukkan 21 frá vegamótunum að Reykhólum (neðst á myndinni) og ætlunin er að vera á Vaðalfjöllum kringum miðnætti og njóta miðnætursólarinnar. Allir eru velkomnir að slást í hópinn. Veður er mjög gott núna á sjálfri Jónsmessunni eins og verið hefur undanfarna daga, nánast heiðskírt, og allar líkur á því að ofan af Vaðalfjöllum (efst til hægri á myndinni) megi sjá sólina skríða yfir sjóndeildarhringnum um miðnæturbil án þess að setjast.