Tenglar

23. apríl 2009 |

Jörfagleði Dalamanna stendur sem hæst þessa dagana

Dalabyggð, vagga landafundanna. (dalir.is)
Dalabyggð, vagga landafundanna. (dalir.is)

Þessa dagana og allt fram á sunnudag stendur yfir árleg Jörfagleði Dalamanna. Dagskráin er fjölbreytt á hverjum degi og má telja að þar höfði sitthvað til grannsveitunga í Reykhólahreppi. Ekki síst má þar nefna markaðsdaginn sem haldinn verður í Búðardal á laugardag, kosningadaginn sjálfan, og handverkssýningu eldra fólks úr Dölum og Reykhólahreppi sama dag. Ólafsdalsþing verður haldið í Dalabúð í dag, sumardaginn fyrsta, og má finna dagskrá þess hér. Reykhólahreppur var meðal stofnenda Ólafsdalsfélagsins á síðasta sumri. Jafnframt skal minnt á kaffihlaðborðið hjá Dóru á Skriðulandi í Saurbæ á sunnudag, þar sem Þorrakórinn syngur fyrir gesti. Dagskrá Jörfagleðinnar í heild er að finna hér.

 

Jörfagleði fyrr og nú

 

Jörfagleðin er kennd við Jörfa í Haukadal í Dalasýslu, en þar var um árabil kringum aldamótin 1700 haldinn árlegur vikivakadansleikur um jólin. Fólk kom víða að og fór í ýmsa leiki og dansað var í baðstofunni á Jörfa. Skemmtanir þessar voru vinsælar meðal almennings en guðsmenn og sýslumenn höfðu á þeim illan bifur vegna siðleysis sem þeir töldu iðkað þar. Dansinn í Hruna syðra mun hafa verið af svipuðum toga, en þar var gleðskapurinn haldinn í sjálfri kirkjunni og endaði með því að jörðin gleypti hana og samkomugestina með.

 

Sagt var að mikið hefði verið um barnsfæðingar í Dölum og næstu héruðum níu mánuðum eftir hverja Jörfagleði og stundum erfitt að feðra börnin með nokkurri vissu. Á síðustu Jörfagleðinni sem haldin var á fyrri tíð munu nítján börn hafa komið undir, sumir segja þrjátíu. Svo fór að sýslumenn unnu fullnaðarsigur í baráttu sinni gegn þessum ósóma og var Jörfagleðin loks bönnuð með öllu.

 

Það var ekki fyrr en á dögum Péturs Þorsteinssonar sýslumanns í Dalasýslu fyrir fáeinum áratugum sem Jörfagleði var endurvakin - ekki síst með stuðningi og hvatningu sjálfs sýslumannsins, jafnvel að frumkvæði hans, að sagt var. Hvort með fagnaði þessum núna verður eitthvað spornað við fólksfækkun í héraðinu og afleiðingarnar verða í fyllingu tímans eins og fyrrum skal ekkert fullyrt að svo stöddu. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

 

Vefur Dalabyggðar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31