22. október 2011 |
Kaffi og vöfflur eftir messu á Reykhólum
Helgistund verður í Barmahlíð á Reykhólum kl. 12.30 á morgun, sunnudag, og messa í Reykhólakirkju kl. 14. Eftir messuna verður Vinafélag Barmahlíðar með kaffi- og vöfflusölu í Barmahlíð. Sunnudagaskóli verður í kirkjunni kl. 11 fyrir hádegi þar sem börnin koma í náttfötum og með bangsann sinn eða dúkkuna. Guðsþjónusta verður í Staðarhólskirkju kl. 16 og kaffi í Tjarnarlundi á eftir.
Viðar Guðmundsson annast undirleik og kór Reykhólaprestakalls syngur. Sr. Elína Hrund hlakkar til að sjá sem flesta.