Kaffihús og kvikmyndir
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum og Barðstrendingafélagið taka höndum saman og verða með kaffihús í húsnæði sýningarinnar núna í kvöld, laugardagskvöldið 26. apríl. Þar verða kynntar kvikmyndirnar sem teknar voru 1959 og 1967 og hafa rúllað á sýningunni síðustu ár. Nú hefur Barðstrendingafélagið látið talsetja myndirnar og gefið þær út á mynddiski undir heitinu Vestureyjar Breiðafjarðar. Það er Ólafur A. Gíslason úr Skáleyjum sem lýsir því sem fyrir augu ber í myndunum.
Húsið verður opnað kl. 19.30 og hefst kvikmyndasýningin kl. 20.30. Hægt verður að kaupa veitingar að hætti Bátakaffis. Líka verður hægt að kaupa mynddiskinn á staðnum og síðan í allt sumar á Báta- og hlunnindasýningunni.
Vegna takmarkaðs sætafjölda er fólk beðið að hafa samband í síma 894 1011 eða netfanginu info@reykholar.is til að tryggja sér sæti.
Hvetjum alla til að kíkja og eiga góða kvöldstund saman.
- Kveðja frá Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum.