19. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Kaffikvörn og félagsvist í Sævangi á Ströndum
Spurningaleikur í anda pub-quiz undir heitinu Kaffikvörn verður í Sævangi við Steingrímsfjörð á morgun, sunnudag, og hefst kl. 14. Spurningar, gleði og gaman, segir í tilkynningu, og allir velkomnir. Verð er kr. 800 fyrir 12 ára og eldri, 500 fyrir 7-12 ára og frítt fyrir yngri, kaffiveitingar innifaldar. Á fimmtudag (24. janúar) verður síðan haldin félagsvist í Sævangi. Spilamennskan hefst kl. 20, þátttökugjald er kr. 800 og veitingar innifaldar.