16. desember 2016 | Umsjón
Kassar, umslög og frímerki á skrifstofunni
Núna fyrir jólin fást á skrifstofu Reykhólahrepps umbúðakassar (rauðu kassarnir frá Íslandspósti), umslög og frímerki fyrir jólasendingarnar á sama verði og hjá Póstinum. Þetta er ný aukaþjónusta fyrir íbúana sem skrifstofan ákvað að veita. Eftir sem áður þarf fólk að annast sjálft að koma sendingunum á póstbílinn.
Íslandspóstur er líka með aukaþjónustu nú fyrir jólin. Póstferðir um Reykhólahrepp verða alla virka daga í næstu viku eða dag hvern frá mánudegi og fram á föstudag, Þorláksmessu.