24. ágúst 2015 |
Kennir undirstöðuatriðin í söng
Hanna Dóra Sturludóttir söngkona og söngkennari býður upp á söngkennslu í Búðardal dagana 4. og 5. september. Þetta eru einkatímar fyrir fólk á öllum aldri, þar sem farið verður í undirstöðuatriði í söng (öndun, stöðu, framburð og túlkun og svo framvegis). Hægt er að velja hálftíma kennslustund (kr. 2.500) eða klukkutíma (kr. 5.000).
Áhugasamir hafi samband við Hönnu Dóru fyrir mánaðamót í síma 781 2934 eða netfanginu hannadora@gmx.de.