16. maí 2016 |
Kennslulok, skólaferðalög og skólaslit
Síðasti skóladagurinn í Reykhólaskóla á þessu vori verður á miðvikudag og lýkur honum nokkru fyrr en venjulega. Eftir hádegið fara nemendur í 5.-7. bekk í skólaferðalag á Snæfellsnes. Stefnt er að því að næsta dag fari svo nemendur í 1.-4. bekk í skólaferðalag til Hólmavíkur og nágrennis.
Skólaslit verða í Reykhólakirkju kl. 20 á fimmtudag í næstu viku, 26. maí. Síðan verður nemendum og foreldrum þeirra og forráðamönnum boðið í kaffi í skólanum.