Tenglar

22. janúar 2016 |

Keppnin að byrja: Allir lesa á þorranum

Landsleikurinn í lestri, Allir lesa, hefst í dag, bóndadag, og stendur allan þorrann eða til konudags 21. febrúar. Hann felst í því að skrá lestur á einfaldan hátt og halda þannig eigin lestrardagbók. Keppt er í liðum og mældur sá tími sem liðin verja í lestur. Í lokin eru sigurlið heiðruð með viðurkenningum og verðlaunum.

 

Allar tegundir bóka eru gjaldgengar. Engu máli skiptir hvernig bækur eru lesnar eða hvort um er að ræða prentaðan texta, rafbók eða hljóðbók. Hér er átt við allar bækur sem innihalda til dæmis skáldskap, fræði, skýrslur eða eitthvað allt annað.

 

Allir geta myndað lið, til dæmis á vinnustaðnum, í saumaklúbbnum eða vinahópnum eða með fjölskyldunni. Foreldrar sem lesa fyrir ung börn sín eru sérstaklega hvattir til að mynda lið með börnunum og skrá lesturinn. Liðsstjórinn stofnar lið inni á vef keppninnar og bætir hinum í liðið. Aðrir geta einnig fundið liðið og gengið í það. Þau lið sem verja mestum tíma í lestur standa uppi sem sigurvegarar.

 

Að leiknum Allir lesa standa Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík, bókmenntaborg Mennta-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Íþróttasamband Íslands.

 

Reykhólahreppur var meðal efstu sveitarfélaga í keppninni í fyrra.

 

Nánari upplýsingar og skráning á vef keppninnar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31