Kerfið úthýsir Guðnýju Sæbjörgu héðan í frá
Ekki er gert ráð fyrir því í íslensku ríkiskerfi að langveik börn eldist og þurfi á áframhaldandi aðstoð samfélagsins að halda. Steinunn Rasmus á Reykhólum er móðir Guðnýjar Sæbjargar Jónsdóttur, tvítugrar stúlku, sem þarf umönnun nær allan sólarhringinn. Steinunn segir þjóðfélagið hafa brugðist Guðnýju. Ekkert úrræði er núna í sjónmáli nema elliheimili.
Veikindi Guðnýjar falla undir heilbrigðisráðuneytið en fötlun hennar heyrir undir félagsmálaráðuneytið. Ekkert úrræði er til fyrir stúlkuna í kerfinu vegna þess að hún er orðin of gömul.
Rjóðrið er hvíldarheimili fyrir langveik börn upp að átján ára aldri. Nokkur börn sem komin eru yfir þann aldur hafa verið á sérstakri undanþágu, eins og Guðný, en nú er sú undanþága að renna út.
Guðrún Ragnars, deildarstjóri í Rjóðrinu, segir að það vanti hjúkrunarheimili fyrir þennan aldurshóp. Börnin séu oft of veik til að dvelja á sambýlum fyrir fatlaða. Foreldrarnir eldist, börnin vaxi þeim yfir höfuð en oft þurfi þau sólarhringsumönnun. Fjölskyldur hreinlega gefist upp.
Á Reykhólum er elliheimilið eina úrræðið, sem telst ekki mjög vænlegur framtíðarkostur fyrir tvítuga stúlku. Aðrir kostir standa henni ekki til boða hérlendis.
Frá þessu er greint á vefnum mbl.is og í vefsjónvarpi Morgunblaðsins. Sjá nánar þar: Lokað á langveika stúlku.
Sjá einnig bloggsíðu Guðnýjar Sæbjargar og Steinunnar móður hennar.