26. nóvember 2016 | Umsjón
Kirkjubrall og hádegisverður í málningarfatnaði
Kirkjubrall verður í Reykhólakirkju kl.11 á morgun, sunnudag. Allir þurfa að vera í fötum sem málning má fara í. Stundin er opin öllum, margþætt verkefni, jólaföndur og síðan hádegisverður á eftir í boði kirkjunnar.
„Hlakka til að sjá ykkur!“ segir sr. Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur.