19. febrúar 2009 |
Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Dagskrá Kjördæmisþings í Borgarnesi, 21.02.09
Haldið í Menntaskóla Borgarfjarðar
12:00 Fundur settur
Kosning fundarstjóra
Kosning fundarritara
12:30 Matarhlé, súpa og brauð í boði kjördæmisráðs.
13:15 Leið valin til uppstillingar á lista Samfylkingarinnar í NV kjördæmi
15:00 Kaffihlé
15:30 Almennar stjórnmálaumræður
16:30 Kynning frambjóðenda
17:30 Fundi slitið
----------------------------------------------------------------
Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi sem haldið var á Akureyri 15. febrúar var samþykkt að fara í opið prófkjör. Kosið verður um átta efstu sætin og skal kynjaregla flokksins gilda þ.e. að annað kynið hafi ekki minna en 40% sæta framboðslistans. Einstaklingar af sama kyni skipi þó aldrei fleiri en tvö sæti í röð.
Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldið var 15. febrúar var samþykkt að fara að velja í 5 efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri þann 7. mars. Auk þess verður jafnræði kynjanna tryggt í efstu sæti framboðslistans. Kjósendur velja 5 nöfn á kjörseðlinum og númera frá 1-5. Þegar talning atkvæða liggur fyrir skal tryggja jafnt kynjahlutfall í 1. og 2. sæti. Næst skal hugað að jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um að hvort kyn skuli hafa að lágmarki 40% fulltrúa hvað varðar sæti 3-5.
--
Þórhildur Ólafsdóttir
kosningastýra Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Sími: 414-2205
GSM: 869 - 9999