30. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Kjörfundur á Reykhólum kl. 9-17
Minnt skal á það sem fram hefur komið í dreifibréfi frá kjörstjórn, að kjörfundur í Reykhólahreppi við sveitarstjórnarkosningarnar á morgun, laugardaginn 31. maí, verður á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum, og stendur frá kl. 9 til 17.
Kjörstjórn í Reykhólahreppi skipa Áslaug B. Guttormsdóttir, formaður, Steinunn Ólafía Rasmus og Guðjón Dalkvist Gunnarsson.
Á kosningavef innanríkisráðuneytisins er að finna margháttaðar almennar upplýsingar varðandi kosningarnar.