Kjörskrá Reykhólahrepps liggur frammi á skrifstofu
Kjörskrá Reykhólahrepps vegna Alþingiskosninganna 25. apríl liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, frá og með deginum í dag og fram til kjördags. Skrifstofan er opin virka daga kl. 10-15. Kjörgengir eru þeir sem voru skráðir með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá fimm vikum fyrir kjördag. Kjósendum sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á. Sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli kjörskrárstofna frá Hagstofu Íslands en enginn getur neytt kosningaréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram.
Á kjörskrá í Reykhólahreppi eru nú 206 manns, þar af 111 karlar og 95 konur. Í Norðvesturkjördæmi eru 21.294 manns á kjörskrá, þar af 5.100 í vestfirskum sveitarfélögum.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr.kosningalaga, sbr. b-lið ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 16/2009, skulu kjörskrár lagðar fram eigi síðar en föstudaginn 17. apríl 2009. Kjörskrá skal liggja frammi á skrifstofu sveitarfélags eða öðrum hentugum stað á almennum skrifstofutíma til kjördags.
Ítarlegar upplýsingar um kosningarnar núna og flest sem að þeim snýr, sem og úrslit fyrri kosninga, má finna á undirvef dómsmálaráðuneytisins, kosning.is.