15. júní 2016 |
Kjörskrá liggur frammi
Kjörskrá vegna forsetakjörs 25. júní liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps til skoðunar. Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.
Hér á vefnum island.is getur fólk athugað hvar það er á kjörskrá