Tenglar

17. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Kjörskrá liggur frammi - athugasemdir óskast

Kjörskrá í Reykhólahreppi vegna kosninga til Alþingis liggur frammi á skrifstofu hreppsins á Reykhólum á skrifstofutíma fram á kjördag. Fólk er beðið að athuga hvort það er skráð á réttum stað á kjörskránni. Leiðrétt verður ef svo er ekki og athugasemdir gerðar í tæka tíð.

 

Kjörfundur í Reykhólahreppi verður í Bjarkalundi á kjördag, laugardaginn 27. apríl, frá kl. 10 til 18. Athugið, að kosningin fer ekki fram á Reykhólum.

 

Kosning utan kjörfundar í Reykhólahreppi verður hins vegar á skrifstofu hreppsins við Maríutröð á Reykhólum mánudaginn 22. apríl - sjá nánar hér.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31