2. mars 2010 |
Kjörskráin liggur frammi á hreppsskrifstofunni
Kjörskráin í Reykhólahreppi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag liggur frammi á skrifstofu hreppsins við Maríutröð á Reykhólum. Samkvæmt henni eru samtals 211 manns á kjörskrá í hreppnum eða 108 karlar og 103 konur. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 10 til 15.