Tenglar

1. apríl 2012 |

Klúbburinn Reykhólar MC endurvakinn

Ákveðið hefur verið að endurvekja mótorhjólaklúbbinn Reykhólar MC, en hann hefur legið í dvala í meira en öld. Vinsældir slíkra klúbba fara mjög vaxandi hérlendis eins og fram hefur komið í fréttum. Foringi klúbbsins Reykhólar MC frá stofnun og allt þar til hann lognaðist út af var Ásmundur „Boom“ Jónsson, bóndasonur og síðan bóndi í Neðra-Koti í Reykhólasveit (löngu komið í eyði).

 

Fundist hefur á Þjóðskjalasafni plakat klúbbsins með mynd af Ásmundi og mótorhjóli hans (sjá meðf. mynd).

 

Það orð lá á, að Ásmundur og félagar hans legðu stund á eggjaþjófnað og terroríseruðu föruskáld og seli en slíkt varð aldrei sannað. Aftur á móti hefur geymst vísa eftir föruskáldið Tómas Geirdæling um Ásmund og segir hún sitt:

 

          Ofsækir oss alla tíð,

          einkum nærri jólum.

          Illur maður ár og síð,

          Ásmundur á hjólum.

 

Þeir sem vilja ganga í klúbbinn skrái sig í netpósti. Konur velkomnar að því tilskildu að þær hafi ekki mannsvit.

 

Endurstofndagur klúbbsins Reykhólar MC er 1. apríl 2012.

 

Athugasemdir

Eyvindur, mnudagur 02 aprl kl: 07:26

Óska fréttaritara til hamingju með bestu frétt dagsins

Hjalti, mnudagur 02 aprl kl: 11:17

Hlynur þú ert lang lang flottastur......

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31