25. apríl 2009 |
Kom í hátíðarbúningi á kjörstað í Bjarkalundi
Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins, að nokkuð væri um að eldra fólk kæmi sparibúið á kjörstað. Þetta með spariklæðnað og eldra fólk er þó ekki einhlítt. Fer að vísu eitthvað eftir skilgreiningu og skilningi á hugtakinu „eldra fólk“. Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum í Reykhólahreppi kom á kjörstaðinn í Bjarkalundi í þjóðbúningi íslenskra karla. Er hann þó ekki orðinn hálffimmtugur.
Áður hafði Bergsveinn aðeins tvisvar klæðst þessum hátíðarfatnaði. Það var þegar börnin voru fermd, í fyrra sinnið fyrir sjö árum og seinna skiptið fyrir fjórum árum.