Tenglar

14. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Koma megi í veg fyrir mikil náttúruspjöll

Ljósm. fuglavernd.is / Sindri Skúlason.
Ljósm. fuglavernd.is / Sindri Skúlason.

Stjórn Fuglaverndar hvetur stjórnvöld til að fara að öllu með gát og skoða fleiri möguleika varðandi vegagerð í Gufudalssveit. Félagið lýsir yfir stuðningi við vegagerð í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Með þeirri leið verður til láglendisvegur á þessu svæði og er því ekkert því til fyrirstöðu að ráðast í hana strax og bæta þannig úr brýnum þörfum Vestfirðinga á betri samgöngum.

 

Þannig hefst ályktun frá Fuglavernd vegna vegagerðar í Gufudalssveit, sem birt er á vef samtakanna. Síðan segir:

 

Fuglavernd telur, að með þessu megi koma í veg fyrir þau miklu náttúrspjöll, sem myndu hljótast af vegagerð við vestanverðan Þorskafjörð, en hún fer um óspillta náttúru, m.a. eftir Teigsskógi endilöngum, út í sjó og yfir tanga yst á Hallsteinsnesi og yfir eyjar og sker í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar, í nágrenni tveggja arnarsetra. Mikilvægum fæðusvæðum vaðfugla og æðarfugla og varpsvæði arna er því stefnt í hættu. Stíflun Gilsfjarðar ætti að vera mönnum víti til varnaðar á þessu svæði.

 

Fuglavernd telur að í náttúruverndarmálum verði menn að horfa til framtíðar og ekki sé réttlætanlegt að fórna náttúruverðmætum, sem auk þess eru á náttúrminjaskrá, skrá um Alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði og falla undir lög um verndun Breiðafjarðar og Ramsar-sáttmálann, þegar aðrar leiðir eru fyrir hendi eins og í þessu máli. Göng undir Hjallháls er ein af þeim.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31