Tenglar

9. janúar 2017 | Umsjón

Könnun varðandi ljósleiðara – auglýsing

Wikimedia Commons.
Wikimedia Commons.

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Reykhólahreppi, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja í dreifbýli Reykhólahrepps til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

 

 

Auglýst er eftir:


A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu í Reykhólahreppi (utan þéttbýlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.

B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o.fl.

C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Reykhólahreppi sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

 

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið sveitarstjori@reykholar.is fyrir klukkan 12 á hádegi þann 25. janúar 2017. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.

 

Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið sveitarstjori@reykholar.is.

 

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Reykhólahrepp né þá sem sýna verkefninu áhuga.

 

Sveitarstjóri Reykhólahrepps.

 

Athugasemdir

Dalli, mnudagur 09 janar kl: 21:55

Vitlaust ártal.

Umsjón, mnudagur 09 janar kl: 22:35

Takk, Dalli, búið að breyta 2016 í 2017. Það er iðulega ekki fyrr en kemur fram á þorra sem gamla ártalið er ekki lengur forritað fast í huganum.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31