Tenglar

28. apríl 2011 |

Konukvöld í Leifsbúð í Búðardal

Freyja Ólafsdóttir í Leifsbúð í Búðardal - fyrrverandi Bjarkalundarkokkur - minnir á konukvöld á laugardag, svona áður en sumarið kemur í alvörunni, eins og hún komst að orði. Heimakonur og aðrar vanar ætla að vera með kynningar á ýmsum vörum og líka verður vínkynning frá Ölgerðinni. Síðan ætlar Helga Braga, ein skemmtilegasta kona landsins, að taka svolitla syrpu og skemmta mannskapnum. Vorlegt hlaðborð verður í boði.

 

„Ég vil alveg endilega fá hressar konur úr Reykhólasveitinni til mín á þessa frábæru skemmtun“, segir Freyja.

 

Allar nánari upplýsingar er að finna hér (pdf). Tekið skal fram, að meðfylgjandi mynd er úr auglýsingunni sem Freyja sendi vefnum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31