Tenglar

4. nóvember 2010 |

Konukvöld með slæðum í Bjarkalundi

Af vefnum Undirföt.is.
Af vefnum Undirföt.is.
Konukvöld á vegum Kvenfélagsins Kötlu verður í Bjarkalundi annað kvöld, föstudag, og hefst kl. 20.30. Þema kvöldsins er slæður og mælst er til þess að allar konur mæti með slæður. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Veislustjóri verður Sigríður Klingenberg lífskúnster og spámiðill og mun hún spá fyrir þeim sem vilja í lokin. Anna Gunnarsdóttir stílisti og snyrtifræðingur kíkir í fataskápinn og ráðleggur hvernig hægt er að gera mikið úr litlu og kennir að binda slæður. Ein heppin verður lituð, klippt og förðuð. Elína Hrund yngri, eigandi hársnyrtistofunnar Spes-Hár, mun sjá um klippingu og litun með Bed Head vörum frá TIGI. Anna Gunnarsdóttir snyrtifræðingur farðar með vörum frá Forever Living.

 

RYK design (Kristín Kristjánsdóttir) mun kynna sínar vörur, falleg íslensk fatahönnun. Soffía Húnfjörð frá Undirföt.is (http://www.undirfot.is/) mun kynna sínar vörur sem koma frá Kanada, Bretlandi, Póllandi og Lettlandi og eru úr hágæðaefnum.

 

Léttar veitingar. Miðaverð aðeins kr. 2.900. Forsvarskonur Kötlu hlakka til að sjá sem flestar á konukvöldinu.

 

Athugasemdir

Jóna Magga, fimmtudagur 04 nvember kl: 14:26

Smekklega valin mynd :D

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31