Tenglar

11. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Konur í Ólafsdal og héraðsbundnar matarhefðir

Ný sýning verður opnuð í Ólafsdal við Gilsfjörð kl. 14 á laugardag á efri hæð skólahússins sem eitt sinn hýsti fyrsta búnaðarskóla á Íslandi. Sýningin er samstarfsverkefni Ólafsdalsfélagsins og Byggðasafns Dalamanna og fjallar um nám og störf kvenna í Ólafsdal á dögum skólans (1880-1907). Við opnunina mun Sigríður Hjördís Jörundsdóttir spjalla um efni sýningarinnar.

 

Í skólahúsinu gamla verður sama dag opnuð kynning á verkefni um matarhefðir við Breiðafjörð og á Ströndum. Kynningin kemur frá Þjóðfræðistofunni á Hólmavík. Klukkan 15 munu Katla Kjartansdóttir og Kristinn Schram segja frá.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31