Tenglar

18. september 2019 | Sveinn Ragnarsson

Konur ráðandi í Reykhólahreppi

Aftari röð: Árný Huld, Kolfinna Ýr, Tryggvi Harðarson sveitarstjóri, fremri röð: Rebekka, Jóhanna Ösp og Embla Dögg.
Aftari röð: Árný Huld, Kolfinna Ýr, Tryggvi Harðarson sveitarstjóri, fremri röð: Rebekka, Jóhanna Ösp og Embla Dögg.
1 af 6

 Á reglulegum fundi sveitarstjórnar Reyhólahrepps, 10. þ.m. var sveitarstjórn eingöngu skipuð konum.

3 konur eru aðalmenn í sveitarstjórn, þær Árný Huld Haraldsdóttir, Embla Dögg Bachmann og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, og á þennan fund mættu í forföllum karlanna, Rebekka Eiríksdóttir og Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir varamenn.

 

Sennilega er þetta í fyrsta sinn sem konur sitja fullskipaðan sveitarstjórnarfund hér í sveit.

Til gamans má geta þess að meirihluti forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana í hreppnum eru konur.

 

Og úr því verið er að fjalla um konur í stjórnum og embættum, þá hafa síðustu 14 ár konur gegnt prestsþjónustu í Reykhólaprestakalli. Það eru Sjöfn Mueller Þór, Elína Hrund Kristjánsdóttir, Hildur Björk Hörpudóttir, Sigríður Óladóttir og Anna Eiríksdóttir. Myndunum af þessum heiðurskonum er nappað af facebook, og því eru gæðin á sumum ekki eins og best er á kosið.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31