Tenglar

25. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Kór, hreysti, knattspyrna, bókasafnið, sundlaugin

Frá Reykhólum, í forgrunni eru skólinn og íþróttahúsið. Ljósm. Árni Geirsson.
Frá Reykhólum, í forgrunni eru skólinn og íþróttahúsið. Ljósm. Árni Geirsson.

Neðangreindar upplýsingar eru birtar hér til að minna fólk á það, að ýmislegt er við að vera bæði til gagns og gamans á Reykhólum yfir vetrartímann, hvort heldur er fyrir börn eða fullorðna. Allir sem geta eru hvattir til að nýta sér eitthvað af þessu.

 

Kór

Hrefna Jónsdóttir heldur kóræfingar á þriðjudögum og fimmtudögum.

8 ára til 12 ára á þriðjudögum kl. 17-18

4 ára til 7 ára á fimmtudögum kl. 17-18

 

Hreysti

Kolfinna Ýr verður með hreystiæfingar í íþróttasal skólans á mánudögum og miðvikudögum kl. 16.15-17.15.

 

Knattspyrna

Bjarni verður með knattspyrnuæfingar á fimmtudögum frá 31. janúar til 28. febrúar.

1.-4. bekkur kl. 14-15

5.-10. bekkur kl. 15-16

 

Bókasafn

Bókasafnið er opið mánudaga og miðvikudaga kl. 17-19.

 

Grettislaug

Opið alla daga nema miðvikudaga og sunnudaga kl. 16-20 (á morgun, þorrablótsdaginn, er laugin reyndar opin kl. 14-18 eins og hér hefur komið fram).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31