28. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Kosið til úrslita um Strandamann ársins
Þessa dagana stendur yfir á Strandavefnum síðari lotan í kosningu Strandamanns ársins 2012. Í úrslitum eru þau sem flestar tilnefningar fengu í fyrri umferð, en það eru Björn Kristjánsson á Drangsnesi, Ester Sigfúsdóttir á Kirkjubóli, Viðar Guðmundsson í Miðhúsum og GóGó-píurnar á Hólmavík. „Af tilnefningum í fyrri umferð er ljóst að menning og mannlíf eru Strandamönnum mjög ofarlega í huga í upphafi nýs árs,“ segir á Strandavefnum.
Hægt er að greiða atkvæði gegnum netið fram til mánaðamóta. Sjá nánar hér (þar er jafnframt gerð rækileg grein fyrir þeim sem kosið er um):
► Kosið um Strandamann ársins 2012 (strandir.is)