22. júní 2016 |
Kosið utan kjörfundar á Reykhólum
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna verður á Reykhólum í kvöld, miðvikudag 22. júní. Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar kl. 18-19 bæði á skrifstofu Reykhólahrepps og Dvalarheimilinu Barmahlíð. Kjósendur þurfa að hafa persónuskilríki handbær.
Jafnframt er hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt á venjulegum afgreiðslutíma.
Flest eða allt sem máli skiptir fyrir kjósendur í Reykhólahreppi