19. júní 2010 |
Kosningarnar í Reykhólahreppi ógiltar
Úrskurðarnefnd sem skipuð var til þess að fjalla um kærumál vegna kosninganna í Reykhólahreppi þann 29. maí hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær skuli ógiltar og kosið verði til hreppsnefndar á nýjan leik. Fráfarandi hreppsnefnd mun starfa uns nýjar kosningar hafa farið fram. Ekki liggur fyrir hvenær þær verða.
Úrskurðurinn í heild (pdf-skjal).
29.05.2010 Úrslit kosninganna í Reykhólahreppi 29. maí 2010