26. janúar 2017 | Umsjón
Kráarviska að hætti Svavars Knúts og tónleikar
Tvíþætt dagskrá með yfirskriftinni hér að ofan verður á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum annað kvöld, föstudagskvöld 27. janúar. Byrjað verður á kráarviskunni stundvíslega kl. 20.30. Þar verða 3-5 saman í liði og aðgangseyrir 500 krónur. Tónleikarnir hefjast kl. 22, aðgangseyrir 2.000 krónur.
18 ára aldurstakmark, barinn opinn.
Þetta er vissulega ekki fyrsta heimsókn Svavars Knúts á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum. Hann kom tvisvar árið 2015, í byrjun mars og byrjun ágúst, og fékk afar góðar viðtökur. Í seinna skiptið voru þau Kristjana Stefánsdóttir söngkona saman í för.