Tenglar

12. október 2009 |

Krafa um daglegar ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð

 Baldur kemur til Flateyjar. Myndin er fengin af vef Sæferða.
Baldur kemur til Flateyjar. Myndin er fengin af vef Sæferða.
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga og fastanefnd sambandsins um samgöngumál (samgöngunefnd) skora á yfirvöld samgöngumála að tryggja áframhaldandi daglegar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur gegnt lykilhlutverki í því að tryggja heilsárs samgöngur við sunnanverða Vestfirði í áratugi.

 

Þetta kemur fram í upphafi ályktunar stjórnar og samgöngunefndar FV sem gerð var í dag. Síðan segir:

 

Ætlun samgönguyfirvalda hefur verið að draga úr stuðningi við siglingar ferjunnar þegar lyki framkvæmdum á Vestfjarðavegi 60 milli Flókalundar og Bjarkalundar. Framkvæmdum á Vestfjarðavegi 60 hefur hins vegar verði frestað margsinnis, nú síðast vegna efnahagsástandsins, þar sem innistæður á vegaáætlun voru afskrifaðar vegna hrunsins í þjóðfélaginu. Horft var fram til að uppbyggingu Vestfjarðavegar yrði að mestu lokið um áramótin 2010-2011, ljóst er að því markmiði verður langt í frá náð. Þá er einnig til skoðunar skerðing á vetrarþjónustu á Vestfjarðavegi 60.

 

Því má öllum ljóst vera að daglegar ferðir ferjunnar Baldurs eru samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum lífsnauðsynlegar og samkeppnisstaða svæðisins verður hér stórlega skekkt gagnvart öðrum landshlutum. Má í því samhengi nefna, að fiskútflutningsfyrirtæki hafa á síðustu árum byggt upp verðmæt viðskiptasambönd sem nú er hætta á að fari forgörðum ef daglegar ferjusiglingar verða ekki tryggðar. Hefði slíkt bein áhrif til hins verra á íbúaþróun og aðra atvinnustarfsemi. Þá gegnir ferjan Baldur einnig lykilhlutverki í samgöngum vegna reksturs framhaldsdeildar á Patreksfirði undir stjórn Framhaldsskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

 

Það er því skýlaus krafa stjórnar og samgöngunefndar Fjórðungssambands Vestfirðinga, að daglegar ferjusiglingar yfir Breiðarfjörð verði tryggðar a.m.k. til næstu tveggja ára og Vegagerðinni verði falið að ganga til samninga þar um.

 

Ísafirði 12. október 2009.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga

Fastanefnd um samgöngumál á Vestfjörðum

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31