27. apríl 2022 | Sveinn Ragnarsson
Krakkar úr Reykhólahreppi á Andrésar Andar leikum
Andrésar Andar leikarnir voru settir miðvikudaginn 20. apríl á Akureyri, við mikinn fögnuð þátttakenda og annarra gesta enda hafa leikarnir ekki verið haldnir tvö síðustu ár.
Skíðafélag Strandamanna átti 23 fulltrúa á leikunum, á aldrinum 5 – 15 ára og voru 5 af þeim úr Reykhólahreppi.
Það er skemmtileg grein um þetta og myndir á strandir.is