Tenglar

9. mars 2010 |

Krefjast styrkingar á Gilsfjarðarvarnarlínu

Úr Víðidalsárrétt. Mynd: strandir.is.
Úr Víðidalsárrétt. Mynd: strandir.is.
Sauðfjárveikivarnanefnd Strandabyggðar og nágrannasveitarfélaga hefur gert alvarlegar athugasemdir við fjárframlög til viðhalds og endurbyggingar Gilsfjarðarlínu. Hefur nefndin krafist þess að þegar í stað verði veitt nægu fjármagni til styrkingar hennar þannig að sauðfé hætti að rápa yfir línuna og sama gildir um Kollafjarðarlínu. Þetta kemur fram í ályktun nefndarinnar vegna lungnapestar sem upp kom í sauðfé í Mið-Vestfjarðahólfi.

 

Krafðist nefndin þess jafnframt að landbúnaðarráðuneytið eða Matvælastofnun myndu sýna sauðfjárbændum stuðning í verki í samráði við sveitarstjórnir svo útrýma megi þessari nýju pest af svæðinu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31