Tenglar

7. maí 2016 |

Kvenfélagskonur frá Patró í heimsókn

1 af 4

Flugvélar sem tylla sér á Reykhólum eru ekki einu vorboðarnir auk farfuglanna; hópferðabílar eru líka þar á meðal. Nokkru eftir lokun Hólabúðar klukkan fjögur í dag, sem er venjulegur lokunartími á laugardögum yfir veturinn, langaði hóp kvenna frá Patreksfirði að komast í búðina. Reynir og Ása brugðust snarlega við; þetta var fyrsta einkaopnunin í Hólabúð á þessu vori en örugglega ekki sú síðasta. Seinna fóru konurnar á opna húsið á Báta- og hlunnindasýningunni og voru þar ennþá núna um klukkan hálftólf þegar þetta er skrifað og undu hag sínum vel.

 

Hér var um að ræða rúmlega tuttugu kvenfélagskonur frá Patreksfirði saman á ferð. Vissulega voru þær ekki eina fólkið á opna húsinu. Auk fólks á Reykhólum og úr sveitinni litu þar líka fleiri ferðamenn inn.

 

Á fyrstu myndinni er rútan við Hólabúð en seinni myndirnar þrjár eru teknar á opna húsinu í kvöld.

 

Athugasemdir

Guðný Elínborgardóttir, sunnudagur 08 ma kl: 13:18

Við þökkum fyrir högðinglegar móttökur á Reykhólum. Einnig þökkum frábæra gistiaðstöðu og góðan mat á (Álftalandi) Sennilega ekki rétt nafn á gistihúsinu. Þá þökkum við góðar móttokur í Skálanesi en þar var tekið á móti okkur með sopa og heimagerðu snakki.
Takk kærlega, Kvenfélagið Sif Patreksfirði.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31