19. júní 2010 |
Kvennahlaup á Reykhólum og í Flatey
Kvennahlaup ÍSÍ og Sjóvá fer fram um land allt að þessu sinni á sjálfan kvenréttindadaginn 19. júní. Af því tilefni er hlaupið í ár tileinkað krafti og elju íslenskra kvenfélaga. Með samstöðu, áræðni og dugnaði hafa kvenfélagskonur á Íslandi hrint í framkvæmd ótal framfara- og velferðarmálum fyrir samfélagið. Hlaupið fer nú fram í 21. skipti.
Hlaupið verður á tveimur stöðum í Reykhólahreppi. Í Flatey verða hlaupnir þrír kílómetrar og lagt af stað frá Hótel Flatey kl. 13.30. Á Reykhólum eru í boði tveir, fimm og sjö kílómetrar og lagt af stað frá Grettislaug kl. 11. Frítt í sund að loknu hlaupi.
Nánar hér um Kvennahlaupið.
Myndin var tekin við upphaf Kvennahlaupsins á Reykhólum fyrir tveimur árum.