7. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is
Kvennahlaupið 2013!
Minnt skal á Kvennahlaupið á Reykhólum á morgun, laugardag. Vegalengdir ættu að vera við allra hæfi - velja má um 2 km, 3 km, 5 km og 7 km. Þrátt fyrir heiti viðburðarins er alls engin skylda að hlaupa. Í mörgum tilvikum er einfaldlega rölt með barnavagn og það er hið besta mál. Lagt verður af stað við Grettislaug kl. 11.
Slagorð hlaupsins í ár er Hreyfum okkur saman í tilefni samstarfs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og styrktarfélagsins Göngum saman. Styrktarfélagið Göngum saman veitir árlega myndarlega fjárstyrki til íslenskra grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Félagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar en hreyfing er mikilvæg forvörn gegn brjóstakrabbameini.