14. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is
Kvennahlaupið: Mjög góð þátttaka á Reykhólum
„Ég man ekki eftir svona góðri þátttöku seinustu ár,“ segir Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir, formaður Umf. Aftureldingar í Reykhólahreppi, um Kvennahlaupið í morgun. Um fimmtíu manns tóku þátt í hlaupinu, en þar var Grettislaug bæði upphafsstaður og endamark. „Konur, börn í vögnum og nokkrir strákar. Veðrið var mjög gott og gaman að sjá hve margar konur tóku þátt, “ segir Kolfinna. „Frábært framtak,“ segir hún.
Þetta var í 25. sinn sem Kvennahlaupið er haldið hérlendis.
Myndirnar sem hér fylgja voru teknar á Reykhólum við þetta tækifæri.