16. júní 2012 |
Kvennahlaupið: Þetta er frábært
MYNDIR - Milli 40 og 50 konur á öllum aldri (stelpur á öllum aldri mætti frekar segja) tóku þátt í Kvennahlaupinu á Reykhólum í dag. „Tilgangurinn er að fá konur út að hreyfa sig, svo að þetta er frábært“, segir Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir, skokkari, móðir og kennari á Reykhólum. Veður var gott en mótvindur fyrsta sprettinn inn Hellisbraut eins og sjá má á myndunum. Í Kvennahlaupinu ríkir gamla Ólympíuhugsjónin: Ekki að vinna heldur að vera með. Eða líka: Að sigra sjálfan sig.
► 15.06.2012 Kvennahlaupið á sínum stað á Reykhólum