11. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patró
Nú um helgina fer fram Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2014 á Patreksfirði. Um 150 konur alls staðar af landinu taka þátt í þinginu. Slysavarnadeildin Unnur á Patreksfirði, sem er 80 ára í ár, er gestgjafi þingsins. Móttaka verður annað kvöld, föstudag, en almenn þingstörf hefjast á laugardagsmorgun.
Ef frekari uppýsinga er óskað er bent á formann Unnar á Patreksfirði, Björgu Sæmundsdóttur, í síma 846 1362 eða í netfanginu myrar10@simnet.is.