Tenglar

14. júní 2016 |

Kviss fyrir alla aldurshópa

Stubbkviss verður á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum á fimmtudagskvöld, 16. júní. Þetta er tómstundaslútt fyrir alla aldurshópa eftir frábæran vetur og hefst kl. 19. Kvissið verður með sjónvarps- og kvikmyndaþema og verður þar farið um víðan völl. Þess vegna er gott að hafa í liðunum blöndu af mannskap á ólíkum aldri. Þrír til sjö geta verið í liði. Ekki þurfa liðin samt að vera fyrirfram ákveðin þegar komið er á staðinn.

 

Foreldrar eru hvattir til að mæta með krökkunum og allir skemmti sér saman. Sjoppan verður opin. „Hlakka til að sjá ykkur sem flest!“ segir Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31