Tenglar

26. febrúar 2011 |

Kvöldmessa með Taizé-sniði á Reykhólum

Kvöldmessa -  Taizé-messa - verður í Reykhólakirkju annað kvöld, sunnudag, kl. 20.30. Þetta er önnur Taizé-messa vetrarins á Reykhólum. Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur. Taizé-messa er helg samvera, bæna- og íhugunarstund. Messuformið er einfaldara en í hinni hefðbundnu sunnudagsmessu og byggt á einföldum laglínum við stutta texta ritningarinnar. Þessi vers eru oft endurtekin og sungin til íhugunar.

 

Form Taizé-messunnar er einfalt og einlægt. Kertaljós og reykelsi og fólk finnur ilminn þegar inn kemur. Stutt ávarp er flutt en ekki eiginleg prédikun. Lestrar eru úr Davíðssálmum, bréfum Nýja testamentisins eða spámannaritunum og guðspjöllunum. Þetta form er þekkt víða um heim og kennt við þorpið Taizé, sem er skammt frá Cluny í Frakklandi.

 

Reykhólaprestakall

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31