27. apríl 2011 | Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Kynning á Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps
Félagsmálastjóri mun halda kynningu á þjónustu nýrrar Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla í matsal Reykhólaskóla miðvikudaginn 27. apríl kl. 18.00.
Málaflokkar félagsþjónustunnar eru:
- Barnavernd
- Félagsleg ráðgjöf
- Fjárhagsaðstoð
- Heimaþjónusta
- Málefni aldraðra
- Málefni fatlaðra
Kynning þessi verður haldin í öllum þeim fjórum sveitarfélögum sem hafa sameinast um félagsþjónustuna, ásamt Reykhólahreppi eru það Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Strandabyggð.
Kynningin er ætluð öllum íbúum sveitarfélagsins.
Tilkynning frá félagsmálastjóra.