Tenglar

7. apríl 2015 |

Kynning á dreifnámi á Hólmavík

Ertu að pæla í að fara í skóla? Eða ertu ekki viss? Finnst þér dýrt að flytja strax að heiman og langar að spara svolítinn pening áður en þú ferð í burtu í skóla? Myndir þú vilja auka tekjumöguleika þína með aukinni menntun? – Þannig spyr Eiríkur Valdimarsson, umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Hólmavík. Á morgun, miðvikudag 8. apríl, verður þetta nám kynnt á Hólmavík.

 

Þorkell Þorsteinsson aðstoðarskólameistari FNV og Margrét Hallsdóttir námsráðgjafi koma og kynna deildina fyrir áhugasömum og svara spurningum. Kynningin verður í húsnæði dreifnámsins að Hafnarbraut 19 og hefst kl. 14.30. Heitt verður á könnunni og allir hjartanlega velkomnir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31