Tenglar

7. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Kynning á ferðaþjónustu á landsbyggðinni

Ferðamenn í áningarstað fá sér kaffisopa og renna fyrir silung.
Ferðamenn í áningarstað fá sér kaffisopa og renna fyrir silung.

Markaðsstofur landshlutanna halda vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín í Reykjavík 23. janúar kl. 13-17 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Fundurinn er hugsaður sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónum í Reykjavík. Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl frá höfuðborginni á landsbyggðina, segir í tilkynningu. Gestum gefst kostur á kynna sér það sem einstakir landshlutar bjóða með áherslu á vetrarferðamennsku.

 

Á Mannamót er boðið gestum úr höfuðborginni:

  • Ferðaskrifstofufólki
  • Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva
  • Leiðsögumönnum
  • Nemendum í leiðsöguskólanum og ferðamálafræðum
  • Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga
  • Sölu- og kynningarfólki flugfélaga
  • Ferðaskipuleggjendum
  • Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa
  • Opinberum stofnunum: Íslandsstofu, Ferðamálastofu, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, innanríkisráðuneyti, Samgöngustofu, Isavia, kennurum í ferðamálagreinum o.fl.

Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Vestfjarða sem vilja taka þátt í þessu skrái sig á travel@westfjords.is ekki seinna en föstudaginn 17. janúar. Verð fyrir sýnendur er kr. 10.000 á fyrirtæki. Fyrirkomulag Mannamóta er hefðbundið vinnusýningarskipulag en ekki eru fundabókanir. Hvert fyrirtæki verður á sama stað og önnur fyrirtæki úr sama landshluta og geta haft með sér standa, bæklinga og annað kynningarefni. Á Mannamótum bjóða markaðsstofur landshlutanna og þátttökufyrirtæki léttar veitingar og smakk úr heimabyggð.

 

Nánari upplýsingar gefur Díana Jóhannsdóttir, diana@vestfirdir.is. Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru hvött til að taka þátt í Mannamótum og nýta tækifærið til kynningar og sölu á því sem þau hafa að bjóða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31