Kynning á ferðaþjónustu á landsbyggðinni
Markaðsstofur landshlutanna halda vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín í Reykjavík 23. janúar kl. 13-17 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Fundurinn er hugsaður sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónum í Reykjavík. Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl frá höfuðborginni á landsbyggðina, segir í tilkynningu. Gestum gefst kostur á kynna sér það sem einstakir landshlutar bjóða með áherslu á vetrarferðamennsku.
Á Mannamót er boðið gestum úr höfuðborginni:
- Ferðaskrifstofufólki
- Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva
- Leiðsögumönnum
- Nemendum í leiðsöguskólanum og ferðamálafræðum
- Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga
- Sölu- og kynningarfólki flugfélaga
- Ferðaskipuleggjendum
- Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa
- Opinberum stofnunum: Íslandsstofu, Ferðamálastofu, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, innanríkisráðuneyti, Samgöngustofu, Isavia, kennurum í ferðamálagreinum o.fl.
Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Vestfjarða sem vilja taka þátt í þessu skrái sig á travel@westfjords.is ekki seinna en föstudaginn 17. janúar. Verð fyrir sýnendur er kr. 10.000 á fyrirtæki. Fyrirkomulag Mannamóta er hefðbundið vinnusýningarskipulag en ekki eru fundabókanir. Hvert fyrirtæki verður á sama stað og önnur fyrirtæki úr sama landshluta og geta haft með sér standa, bæklinga og annað kynningarefni. Á Mannamótum bjóða markaðsstofur landshlutanna og þátttökufyrirtæki léttar veitingar og smakk úr heimabyggð.
Nánari upplýsingar gefur Díana Jóhannsdóttir, diana@vestfirdir.is. Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru hvött til að taka þátt í Mannamótum og nýta tækifærið til kynningar og sölu á því sem þau hafa að bjóða.